# Að setja mörk

- Link: https://liljas.is/ad-setja-mork/
- Published: 2025-09-20T17:38:57+00:00
- Author: Guðmundur Vestmann

# **Afmörkun**

Að geta fundið fyrir mörkum sínum og metið þörfina fyrir rými og fjarlægð við mismunandi
aðstæður er mikilvægt, bæði til að upplifa sig í kjarnaða í aðstæðunum og til að
koma fram á skýran hátt í samskiptunum.

**Mörk eru mikilvægur þáttur í því að geta verið sannur og áreiðanlegur. Þessi mörk
eru „ratsjá“ okkar gagnvart umheiminum. Þau gefa okkur upplýsingar um „hluti“ eða
fólk sem við gætum rekist á. Án marka upplifum við okkur við óvarin.**

Mörk snúast um hvernig við getum verið í samböndum og samskiptum við aðra, við okkar
nánustu, við samstarfsfólk og í fjölmenni. Hvað gerist inní í þér þegar einhver 
kemur nálægt þér? Hvaða viðbrögð hefur þú þegar einhver vill eitthvað annað en þú?
Mörk eru líka menningarlega skilyrt, það er munur á því hvar mörkin liggja, hvað
er ásættanlegt fer eftir menningarheimum, en allir hafa einhver mörk.

Húðin er okkar líkamlega afmörkun. Að auki þurfum við persónulegt rými sem getur
verið misjafnlega stórt, allt eftir aðstæðum. Hugsaðu um hvernig það er að standa
í troðfullri rútu eða sitja þrjú í sófa, það gæti verið of nálægt. Þetta rými er
stundum kallað orkurými okkar, við getum viljandi minnkað ef það ef ekki nóg pláss
í kring um okkur, en við þurfum að geta haldið því heilu.

Mörk geta líka verið félagsleg og tengd umhverfi og eignarhaldi. Ímyndaðu þér aðstæður
þar sem þú ætlar að heimsækja vin þinn. Þið voruð búin að ákveða að hittast og kannski
gera eitthvað saman, síðan koma allt í einu fleiri gestir sem vilja líka vera með
og fá stóran hluta af athygli vinar þíns. Þú þarft að deila vini þínum með öðrum
þegar þú hélst að þú ættir þá um stund ein. Hvað upplifir þú? Hér erum við að tala
um félagsleg mörk. Þessi félagslegu mörk koma skýrt fram þegar við fáum „fast sæti“
í starfsmannaherberginu og enn skýrara ef það er vinnuborðið, skúffan eða skápurinn
okkar.

Hvort sem það eru okkar persónulegu mörk, félagslegu mörk eða eignarhalds mörk sem
farið er yfir, fáum við líkamleg viðbrögð. Dæmigerð viðbrögð geta verið: að vilja
koma sér í burtu, hverfa, líta undan, snúa sér við, snúa höfði til hliðar, verða
eirðarlaus í líkamshlutum, frjósa eða fara að hlægja. Sumir eru aldir upp við að
hlusta ekki á eigin mörk. Einfalt dæmi er barnið sem er svolítið óöruggt gagnvart
ókunnugum og felur sig á bak við föður eða móður, en er ýtt fram til að heilsa í
stað þess að fá tíma til að skoða sig aðeins um og verða örugg og treysta sér til
að stíga fram. Þetta er lítið dæmi, en ef barnið lendir oft í þessu þá endar það
með því að það gefst upp á að hlusta á sín mörk. Sem fullorðin með með lélega tenginum
við eigin mörk  gætum við orðið fyrir þrýstingi frá öðrum eða okkur sjálfum að framkvæma
eitthvað sem við erum ekki er tilbúinn fyrir, eða eitthvað sem okkur finnst ekki
rétt að gera.

Við getum líka á sama hátt tekið að okkur fleiri verkefni en við ráðum við. Ef við
hlustum ekki á skilaboðin sem mörkin senda, gætum við haldið áfram á þennan hátt
í einhvern tíma en á endanum sendir líkaminn okkur mjög sterk og hávær merki um 
að eitthvað sé að, hann reynir að vernda okkur. Við þurfum að gefa okkur tíma til
að stoppa og athuga hvar við finnum að mörkin okkar liggja. Það þarf ekki að vera
annað hvort / eða, stundum þarf bara smá lagfæringu til að við segjum já, eða við
segjum já við sumu, ekki öllu. Án marka upplifum við okkur varnarlaus, brothætt 
og berskjölduð.

Án marka getum runnið saman við aðra og aðstæðurnar sem við erum í, þaðan er erfitt
að aðgreina sig frá öðrum. Rannsóknir sýna að fólk nær bestu sambandi við hvort 
annað ef hver og einn er í sinni tilfinningu, sinni upplifun, og mætir hinum þaðan.
Við megum ekki vera eins, líða eins, heldur vera ekta í samskiptunum við aðra.

Til þess að geta verið nálæg öðrum verðum við að finna að við erum aðskilin. Því
nákvæmari sem við erum í því að taka eftir því þegar farið er yfir mörkin okkar,
því betur getum við forðast að fara í vörn, og einfaldlega segja stopp/nei. Við 
getum farið út í heiminn öruggari og með meiri forvitni ef við vitum að við getum
sagt nei þegar eitthvað er of mikið eða rangt fyrir okkur. Því betur sem við finnum
fyrir takmörkum og mörkum okkar, því betur getum við aðgreint okkur frá öðrum og
orðið skýrari í samskiptum.
