# Áfallameðferð

- Link: https://liljas.is/afallamedferd/
- Published: 2021-01-10T21:08:04+00:00
- Author: Guðmundur Vestmann

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/afallamedferd-uai-1400x600.jpg)

# ÁFALLAMEÐFERÐ

Bodynamic áfallameðferð snýst um að lenda áfallastreitu og áfalasporum sem sitja
í líkamanum, á öruggan hátt skapa meira andrými í kringum upplifanir þínar og hjálpa
þér að treysta líkama þínum og skynjunum hans. Hún losar um frosin áfallaviðbrögð
sem sitja í líkamanum og hjálpar þér að vinna úr þeim. Áfallameðferð hjálpar þér
að raða saman brotunum upp á nýtt og upplifa bata  – “Post-Traumatic-Growth”.

EMDR er talin vera ein áhrifamesta áfallameðferðin (Eye Movement Desensitization
and Reprocessing), hún er gagnreynd sálfræðileg meðferð þróuð í þeim tilgangi að
hjálpa fólki að vinna úr margskonar tilfinningu álagi vegna áfalla og annarra erfiðleika.

Meðferðin notar tvíhliða augnhreyfingar – eða aðra tegund tvíhliða örvunar – til
að hjálpa heilanum að vinna á öruggan hátt úr sársaukafullum minningum sem sitja
óheppilega í minnisneti heilans með skaðlegum afleiðingum fyrir líðan okkar og viðbrögð.

Tvíhliða örvunin hjálpa heilanum að flokka gamlar áfallaminningarnar rétt, þannig
að þær verða hlutlausar frekar en skaðlegar.

Þú þarft ekki að lýsa áfallinu í löngu og sársaukafullu máli, muna allt sem tengist
vanlíðan þinni eða endurlifa atburðinn að fullu.

EMDR meðferð gagnast við úrvinnslu á ýmiskonar áföllum, við áfallastreituröskun (
PTSD), við kvíða, þunglyndi, margskonar tengslavanda, ofsakvíða, fælni og langvinnri
sorg.
