# Antequera

- Link: https://liljas.is/antequera/
- Published: 2025-09-12T09:37:45+00:00
- Author: Guðmundur Vestmann

## Antequerea

#### **Antequera **er kölluð ,,krossgötur Andalúsíu” og er miðja vegu milli Sevilla, Ronda, Málaga og Granada.

Heimsókn í þennan sögufræga andalúsíska bæ er ferðalag næstum 5.000 ár aftur í tímann,
saga borgarinnar nær aftur til bronsaldar með innfæddum Íberíubúum.

Í Antequera er fjöldi grafhýsa, rómverskra baða, Márakastala, gotneskra kirkna og
klukkuturna frá barokk tímanum.

Þegar horft er á Antequera úr fjarska er borgin dæmigerður miðaldabær, með kirkjuturnum
og hlöðnum veggjum frá tímum Mára. Í dalnum fyrir neðan liggja frjósöm ræktarlönd
sem Guadalhorce-áin gefur líf. Í aldir hefur þetta svæði verið eitt það frjósamasta
í Andalúsíu og er nú leiðandi í ræktun á aspas, korni og ólífum.

Í Antequera eru hin svokölluðu Dolmen sem eru forn grafhýsi, byggð á nýsteinöld 
og koparöld frá um 3750 til 2200 f.Kr. Þau voru byggð af bændum sem sýndu ótrúverðuga
þekkingu á byggingarlist og verkfræði á þeim tíma. Notast var við risastóra steina
sem voru grafnir upp í töluverðri fjarlægð. Þetta bendir til vel skipulagðs samfélags
með sterka forystu og trúarleg lífsgildi. Áætluð þyngd eins af þaksteinunum í Menga-
dolmeninu, er talin vera um 200 tonn. Til samanburðar má geta þess að þyngsti steinninn
á hinum fræga Stone Henge-svæði í Bretlandi er 40 tonn. 

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/IMG_6837-3-scaled-uai-1920x960.jpeg)

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/IMG_6884-3-scaled-uai-1920x960.jpeg)

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/IMG_6876-2-scaled-uai-1920x960.jpeg)
