# Caminito Del Ray

- Link: https://liljas.is/caminito-del-ray/
- Published: 2026-03-31T16:34:01+00:00
- Author: Guðmundur Vestmann

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/b5a66c1d-ea7f-4db1-aee4-1914fbfb3a4d-uai-
1200x600.jpg)

## Caminito del Ray

Caminito del Rey er víðfrægur göngustígur sem liggur meðfram bröttum veggjum þröngs
gljúfurs í El Chorro gili nálægt Ardales í Málaga-héraði í Andalúsíu.  Upphaflega
lvar stígurinn lagður fyrir starfsmenn við vatnsaflsvirkjanirnar við Chorrofossa
og Gaitanejofossa svo þeir gætu farið á milli. Framkvæmdirnar við virkjanirnar hófust
árið 1901 og þeim lauk árið 1905. Alfons XIII konungur fór yfir göngustíginn árið
1921 til að vígja stífluna, Conde del Guadalhorce, þannig varð stígurinn þekktur
undir nafninu Litli Konungsstígurinn eða Caminito del Ray.

Í byrjun 21 aldar var hann kominn í niðurníðslu og hættulegur, því var hann að hluta
til lokaður í meira en áratug. Eftir margra ára umfangsmiklar viðgerðir og endurbætur
var hann opnaður aftur árið 2015. Eftir það er hann einn aðal áfangastaður ferðamanna
í Andalúsíu. Caminito del Ray var hér áður lýst sem „hættulegasti göngustígur í 
heimi“ eftir fimm dauðsföll árin 1999 og 2000.

Stígurinn er 7,7 km og tekur uþb 2 klukkustundir að ganga hann. Hann er  með traustum
og öruggum handriðum og fær fyrir flesta gesti nema kannski þá sem eru með svima
og lofthræðslu eða takmarkaða hreyfigetu.
