# Dagskrá kvennaferðar til Andalúsíu

- Link: https://liljas.is/dagskra-kvennaferdar-til-andalusiu/
- Published: 2025-09-07T17:39:51+00:00
- Author: Guðmundur Vestmann

### **6. – 11. maí. – Hlédrag í Húsi drekaflugunnar.**

### 6. maí. Flogið til Málaga, keyrt í rútu til Húss Drekaflugunnar í um klukkutíma.

### Eftir kvöldmat hittist hópurinn í jógasalnum, farið verður yfir dagskrána framundan, hópurinn hristir sig saman og slakar svo á í lok dags með jóga nidra.

### 7. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.

### Samvera í Jógasalnum milli kl. 11 og 12.

### Þær sem það hafa valið, ganga Caminito del Ray, litla Konungssstiginn. Hópurinn er sóttur kl. 13:45 , gangan byrjar 14:45 og tekur uþb 2. Komið er til baka milli kl. 18 og 18:30.

### Kakó seremónía  með Helen um kvöldið.

### 8. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.

### Ólívuakur er skoðaður og við fræðumst um ólífuræktun og ólífuolíur.

### Samvera og Jóga nidra fyrir svefninn.

### 9. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.

### Gönguferð í El Torcal de Antequera fjallgarðinum, ganga sem er á flestra færi.

### Á heimleiðinni komum við við í borginni Antequera og skoðum eitthvað áhugavert þar.

### Tónheilun með Rocio í jógasalnum eftir kvöldmat.

### 10. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.

### Frjáls tími eftir morgunmat.

### Um eftirmiðdagin er Hópeflandi samvera með sállíkamlegu ívafi

### Á þessu síðasta kvöldi í Húsi Drekaflugunnar komum við saman í jógasalnum skemmtum okkur með heimatilbúinni dagskrá, söngi og dansi.

### **11. – 13. maí  Ronda og Málaga**

### 11. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.

### Kl. 10 eftir morgunmat, er hópurinn sóttur og keyrður til Ronda. Þar skoðum við nokkra merka staði svo sem hina fornu brú yfir gilið.

### Við keyrum seinnipartinn á hótelið í miðborg Málaga þar sem við gistum tvær síðustu næturnar.

### 12. maí. Við bjóðum uppá gönguferð um skemmtilega staði í Málaga í bland við búðaráp.

### Málaga er talin vera ein elsta borg Evrópu, hún geymir enn sína gömlu stemningu og margar gamlar hefðir.

### Borgin er mátulega stór og auðvelt er að skoða sig um í henni. Þar eru frábærir markaðir og fornar götur til að rölta um.

### Um kvöldið hittumst við allar og borðum saman á veitingastað í miðborginni.

### 13. maí. Heimferðardagur. Flug til Íslands er yfirleitt um eftirmiðdaginn, upplagt er að nota tímann þangað til í að skoða Málaga enn betur og njóta þess að upplifa andrúmsloftið í þessari mögnuðu borg.

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/45b15e3b3fc0e05d4881d596d852bb41-3-uai-
1124x1124.jpeg)

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/1000x667-uai-667x667.jpg)

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/anteque-uai-1920x1920.jpg)
