# Edda

- Link: https://liljas.is/edda/
- Published: 2025-09-07T17:45:42+00:00
- Author: Guðmundur Vestmann

**Edda Jónsdóttir.**

Edda Jónsdóttir á að baki nám í Jóga Nidra, Kundalini Jóga og Hatha Jóga. Hún leggur
áherslu á jarðtengingu, hlustun og forvitni í allri iðkun. Edda hefur sótt ýmis 
námskeið sem lýsa áhugasviði hennar s.s. jógaþerapíu, flotþerapíu og Acquatic Massage
Therapy. Edda hefur kennt jóga í Jógasetrinu og fleiri stöðum til fjölda ára. Helstu
áhugamál eru fjölbreytt hreyfing og útivera ásamt ótalmörgu sem snýr að andlegri
og líkamlegri heilsu. Edda bjó um tíma á Spáni og er með BA próf í spænsku auk þess
að vera menntaður kennari. 

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/IMG_0906.jpeg)
