# Einstaklingsmeðferð

- Link: https://liljas.is/einstaklingsmedferd/
- Published: 2021-01-10T20:57:56+00:00
- Author: Guðmundur Vestmann

Að ákveða að fara í sálmeðferð er mikilvæg og persónuleg ákvörðun sem á sér oft 
langan aðdraganda. Flestir ákveða að leita sér hjálpar af því að eitthvað er orðið
of sársaukafullt og vilja losna undan þjáningunni.

Sálmeðferð  vinnur að því að losa um gömul og úrelt munstur viðbragða og auka sjálfþekkingu.
Það eru engin vandamál of stór eða lítil til að byrja að gera eitthvað í málinu,
aldrei of seint að uppgötva eitthvað nýtt.

# EINSTAKLINGSMEÐFERÐ

# EINSTAKLINGS-⏎ MEÐFERÐ

Að ákveða að fara í sálmeðferð er mikilvæg og persónuleg ákvörðun sem á sér oft 
langan aðdraganda. Flestir ákveða að leita sér hjálpar af því að eitthvað er orðið
of sársaukafullt og vilja losna undan þjáningunni.

Sálmeðferð  vinnur að því að losa um gömul og úrelt munstur viðbragða og auka sjálfþekkingu.
Það eru engin vandamál of stór eða lítil til að byrja að gera eitthvað í málinu,
aldrei of seint að uppgötva eitthvað nýtt.

“Það sýnir sig oft í líkamlegum einkennum ef okkur skortir andlega næringu til lengri
tíma, svo sem höfuðverkur, vöðvaspenna, svimi, svefntruflanir, náladoði, hjartsláttur,
lystarleysi eða ofát.“

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/forsida-1-uai-1708x1281.jpg)

Sama hver ástæðan er fyrir því að þú kemur í sálmeðfeð reyni ég að skapa rými þar
sem er pláss fyrir þig til að vera þú sjálf(ur), með allt það sem þú kemur með.

Ég mun styðja þig þegar þú ferð að sjá og skilja  meira samhengið í hlutunum, þitt
eigið hegðunarmunstur, þínar tilfinningar og ímyndanir um sjálfa(n) þig.

Ég vil hjálpa þér að uppgötva fleiri valmöguleika og nýjar hliðar á þér. Vandamálin
dagsins í dag eiga oft rætur í æsku þegar við lærðum að hugsa, haga okkur og finna
til. Mörg okkar glíma við þroskaáföll sem sitja í okkur og geta valdið því að við
eigum í sjálfsniðurrífandi samtali við okkur sjálf og neikvæðum samskiptum við umheiminn.
Sálmeðfeð er úrvinnsluferli til að losa um og mæta því sem aflaga fór með mildi 
og samkennd svo hægt sé að taka við ábyrgðinni á eigin lífi.

Sálmeðferðin sem ég býð uppá er líkamsmiðuð og sniðin að þörfum þínum. Sálmeðfeð
snýst ekki um að breyta sjálfum sér, heldur um að vera maður sjálfur.

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/IMG_5492-uai-1052x1052.jpeg)
