# Erindi um “Líf og dauða”.

- Link: https://liljas.is/lif-daudi/
- Published: 2025-10-04T16:29:47+00:00
- Author: Guðmundur Vestmann

**Í þættinum Uppástand á RÚV (útvarpi) var mér falið að fjalla um efnið ,,Líf”. 
Þátturinn var tekin ****upp 4/10 og flutt  7/11 2024.**

Mig langar mest til að tala um dauðann, fyrst ætla ég þó að tala um hvað lífið er
mikið kraftaverk.

Líkurnar á því að aðstæður sköpuðust fyrir lífi á jörðunni voru mjög tæpar, eða 
1 á móti 10 í þriggja milljónasta veldi. Jafn líklegt og að ég vinni stóra vinninginn
í Víkingalottóinu í hverri viku, samfellt í þrjú ár. Vísindamenn vita hvaða skilyrði
þurfa að vera til staðar fyrir lífi á jörðinni en geta ekki útskýrt hvernig líf 
kviknaði.

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/wonder-13-300x220.webp)

Guðmundur Eggertsson prófessor emeritus segir “Það eru fyrstu skref lífmyndunar 
sem allra erfiðast er að skilja og þar er stór eyða í þekkingu okkar og langt frá
því augljóst að líf þróist úr “súpu” lífrænna þátta.” Mestu leyndardómar lífsins
snúast um upphaf lífsins og alheiminn, um eðli meðvitundar og flókið samspil tilfinninga
og samskipta.

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/wonder-9-300x209.jpg)

Michael Collins geimfari í Appollo 11 varð fyrir áhrifaríkri upplifun þegar hann
horfði á jörðina utan úr geymnum í fyrsta sinn, „ég var undrandi og skyndilega meðvitaður
um hvernig allt á jörðinni er stimplað í hvert einasta atóm líkama míns“. „á þessari
viðkvæmu litlu kúlu“ – var „allt sem ég hafði nokkurn tíma þekkt, allt sem ég hafði
nokkru sinni elskað og hatað, þráð, allt sem ég hélt einu sinni að hefði verið og
myndi nokkurn tíma verða“ Aðrir geimfarar hafa einnig lýst sterkri andlegri upplifun
þegar þeir horfðu á jörðina utan úr geimnum í allri sinni dýrð, svo margir að þetta
fyrirbæri hefur fengið heitið “overview eﬀect“. – þeas áhrif af svona mikilli yfirsýn.
Við forðumst ómeðvitað “tómið” eða það sem við óttumst að sé “ekkert” þegar við 
deyjum og eigum erfitt með að hugsa um eigin dauða og þeirra sem eru okkur kærir.

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/wonder-11-300x200.jpg)

Það var mikið rætt um það á Hjúkrunarþingi sem ég var á um daginn og fjallaði um“
Hjúkrun við lífslok”, að leysa þyrfti upp tabúið í kringum það að tala um dauðann,
að við þurfum að opna umræðuna um dauðann sem óhjákvæmilegan og eðlilegan hluta 
af lífi okkar allra.

Að velta fyrir sér óumflýjanleika dauða okkar getur hjálpað okkur að njóta einfaldrar
ánægju og vera þakklát fyrir fólkið og reynsluna í lífi okkar og öðlast meiri innri
frið. Við erum að æfa einhverskonar dauða við allar breytingar, við þurfum að losa
tökin og sleppa einu til að annað geti fengið rými, það er ekki bæði haldið og sleppt,
lífið er í söðugri umbreytingu og framþróun. Ég las einhverstaðar að stærsta uppgötvun
síðustu aldar hafi verið að menn gætu breyst. Að við værum ekki dæmd til að endurtaka
sífellt sama munstrið og sömu þjáningarnar. Að það væru til leiðir sem geta hjálpað
okkur að breyta lífi okkar og öðlast hamingju.

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/soren-300x300.jpg)

Sören Kirkegård sagði að við ættum ekki að hafa neinar áhyggjur af dauðanum, hann
kæmi hvort sem er. Ég skil þetta svo að við eigum að lifa lífinu hér og nú, ekki
velta okkur uppúr fortíðinni, gleyma okkur í dagdraumum eða hafa áhyggjur af framtíðinni.
Mér finnst hann vera að segja að við ættum að reyna að taka lífinu ekki of alvarlega
og ekki taka öllu svona persónulega. Ég get vitnað um það sem hjúkrunarfræðingur
á líknardeild að fólk missir ekki húmorinn þótt það sé að nálgast eigin dauða og
það heldur áfram að vera það sjálft, er kannski bara meira það sjálft.


**Memento Mori**: “Mundu að þú átt eftir að deyja” var einn helsti kjarninn í heimspeki
fornaldar, æfing til þess ætluð að kenna okkur að meta lífið og lifa því til fulls.

**Carpe Diem: **“Gríptu daginn” er líka úr fornöld og skilaboð um að njóta hvers
dags, eta, drekka og vera glöð í dag því við vitum ekkert um morgundaginn og hvað
hann ber í skauti sér.Við eigum þakka fyrir hverja stund, því tími er það eina sem
við eigum og einn daginn áttum við okkur á því að við eigum minna af honum en við
héldum.

Öll þessi pæling um dauðann og hverfulleikann í lífinu er lykill að hamingju, við
neyðumst þá til viðurkenna að við höfum ekkert vald yfir gangverki lífsins, við 
erum bara partur af því. Það að vinna með deyjandi fólki er gefandi og þroskandi.
Maður verður að vera ekta í samskiptum við deyjandi fólk, nó nonsens takk og vera
í augnablikinu. Mín reynsla af að vinna með deyjandi fólki er að flestir eru óhræddir
við að deyja, hafa íhugað dauðann og náð einhverskonar sátt. Fólk almennt býr yfir
mikilli seglu og visku sem kemur helst í ljós þegar á reynir. Að deyja er ekkert
sem þarf að óttast og minna drama en margir halda.

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/wonder-5-300x200.jpg)
