# MALAGA

- Link: https://liljas.is/malaga/
- Published: 2025-09-07T17:21:12+00:00
- Author: Guðmundur Vestmann

## **Málaga**

**Málaga** er borg sem geislar af arabískri dulúð. Hún býr yfir spennandi menningararfi
sem nær aftur til Rómartímans og Alcazaba-virkisins. Í miðbænum eru þröng og sjarmerandi
götur og hægt er að heimsækja marga áhugaverða staði fótgangandi, til dæmis Picasso
safnið og markaðinn Mercado de Atarazanas. Það er gott að geta látið líða úr sér
á borgarströndinni, La Málagueta. Borgin getur verið mikil bragðupplifun, margir
veitingastaðir hafa unnið til virtra verðlauna.

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/malaga-2444666_1280-uai-720x720.jpg)

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/malaga-3-1-uai-675x675.jpg)

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/anteque-uai-1920x1920.jpg)
