# Námskeið um skömm / feimni og tengsl

- Link: https://liljas.is/namskeid-um-skomm-feimni-og-tengsl/
- Published: 2026-10-23T19:29:18+00:00
- Author: Lilja

Nýtt og spennandi !!
 Í fyrsta skipti á Íslandi !!

Helgarnámskeið með hinum reynslumikla yfirkennara Bodynamic, Lene Wisbom, um skömm,
feimni og kjarkinn sem þarf til að standa á vandræðalegum augnablikum. Farið er 
í fræðilega hlutann á nálgun Bodynamic, gerðar sállíkamlegar æfingar, unnið í hópum
með verkefni tengdu efninu og þátttakendur sem það vilja, deila eigin reynslu af
umfjöllunarefninu.

Meira um námskeiðið:
 [https://www.facebook.com/…/a.112079150…/350103680151589/](https://www.facebook.com/Liljasalmedferd/photos/a.112079150620711/350103680151589/?__cft__[0]=AZUz2Lfz8Ien4hyjj3Rge0zH3Y3B5VKJDqU8lH3NqudWXQYLccwiLUPtYdwVT3HfThsaL0BgRP3D0U4Vgv8WGazQsqQhhPZjuGRuO5MtE0BWBn2YxVeri4sOfKkBa6Oot-ACEQoayTFapwOsdP9dJYeA&__tn__=q)

Bodynamic er heilstætt líkamsmiðað sálmeðferðarakerfi, upprunið í Danmörku, kennt
og stundað í 14-15 löndum í fjórum heimsálfum.

Lilja Steingrímsdóttir Bodynamic sálmeðferðarfræðingur aðstoðar Lenu á námskeiðinu.

Tungumál:
 Enska

Hámarksfjöldi þátttakenda:
 25

Markhópur:
 Fólk sem hefur áhuga á sjálfsvinnu, auknum þroska og sjálfsskilningi
og er til í að vinna eftir sállíkamlegum leiðum og fagfólk sem vinnur með sálræn
vandamál skjólstæðinga og hefur áhuga á líkamlegri nálgun.

Tími: 2.-3. október frá kl. 10 til 16 báða dagana.
 Hádegishlé er kl. 12.30-13.30.
Hádegisverður er innifalinn. Boðið er uppá vatn, te og kaffi í styttri hléum.

Verð:
 30.000.- kr, Greiða þarf staðfestingargjald kr. 15.000.- við skráningu og
rest ekki seinna en 1/10. Þeir sem skrá sig fyrir 10/9 fá 3000 afslátt. Ef hætt 
er við þátttöku fyrir 25/9 er skráningargjald að fullu endurgreitt, ef þátttaka 
er afboðuð eftir 25/9 er skráningargjald endurgreitt að hálfu leiti.

Skráning:
 Upplýsingar um skráning skal send a með tölvupósti til lilja@liljas.is
eða með sms í síma 8396609, taka skal fram nafn og símanúmer þátttakanda. Til þess
að skráning geti farið fram skal greiða staðfestingargjald inn á reikning 0515-14-
005326 kt. 081060-7119.

Staðsetning:
 Þverholt 14 í Reykjavík, 3. hæð t.h.

Frekari upplýsingar um námskeiðið fást hjá Lilju, sími: 8396609, tölvupóstur: lilja@liljas.
is.
