# Sálrænir færnisþættir

- Link: https://liljas.is/salraenir-faernisthaettir/
- Published: 2025-09-20T17:10:48+00:00
- Author: Guðmundur Vestmann

## Ellefu færnisþættir sjálfsins – ,,Ego-functions” módel Bodynamic.

### **Þegar sálræn færni er sett í samhengi við líkamann er hún ekki lengur bara ****hugmynd heldur líka áþreyfanleg, eitthvað sem hægt er að upplifa og þjálfa.**

### **Aðstæður í lífi okkar geta gert það að verkum að sum færni dregst saman á ****meðan önnur sterkari er áberandi og tekur á sig megnið af álaginu.**

### **Það er aldrei of seint að þjálfa upp og styrkja sálræna færni. Í Bodynamic ****meðferð skoðum við hvaða sálræna færni er sterkust og hverja má draga fram ****og efla.**

**1. Tengslafærni** snýst um getuna til að tengjast öðrum, um hversu opinn og móttækilegur
maður er fyrir því að upplifa tengsl með mismikilli nánd, með því að gefa og þyggja.
Hún snýst líka um að taka á móti stuðningi og veita stuðning og getuna til að styðja
við sig sjálfa og um hæfni okkar til að upplifa okkur tengd við umheiminn, andlega,
orkulega, tilfinningalega og huglægt, hún snýst um hvernig við skynjum og stýrum
þessari upplifun.

Að taka á móti stuðningi er ekki það sama og að vera borinn uppi. Skilyrði þess 
að geta tekið á móti stuðningi er að maður standi á eigin fótum og taki þannig á
móti stuðningi sem síðan styður mann í að standa áfram á eigin fótum. Við lærum 
að styðja okkur sjálf með því að upplifa tilheyrandi stuðning utanfrá. Hendur sem
lagðar eru á axlir manns gefa manni stuðning svo hægt sé að lenda, finna fætur á
jörðinni eftir að hafa verið hátt uppi og flogið eða misst fótanna. Vöðvar í þessari
færni gefa okkur stuðning í kring um hjartað svo við missum það ekki, tínum því 
ekki eða gefum það frá okkur. Þessi vöðvar gera okkur líka kleift að opna svo að
hjartaorka frá okkur streymi út og hjartaorka frá öðrum streymi inn. **Það er eitthvað
í okkur sem vill LIFA.**

**2. Stöðufærni** snýst um hvernig maður ber sig í lífinu og um að standa á eigin
fótum; hún snýst um afstöðu til gilda, viðmiða. Hún snýst um það hvort ég haldi 
haus eður ei.

**3. Kjarnafærni** snýst um getuna til að vera í tensglum við sjálfa sig og um það
hvort og hve mikið þú virðir og metur sjálfa þig. Hún snýr að mannlegri hæfni til
að vera í sambandi við sjálfa sig, hve mikla sjálfsvirðingu maður hefur og um mat
á eigin sérstöðu, “ég er einstök, engin er eins og ég”. Með því að þjálfa skynjunina
á kjarnanum getum við æft okkur í hvað okkur líkar við og hvað okkur mislíkar; hverju
við höfum áhuga á og hverju við viljum fá meira af.

**4. Afmörkunarfærni** snýst um færnina til að afmarka sig á lifandi hátt í tengslum
við aðra og umheiminn.
 Að geta fundið fyrir mörkum sínum og metið þörfina fyrir
rými og fjarlægð við mismunandi aðstæður er mjög mikilvægt, bæði til að upplifa 
sig í eigin kjarna í mismunandi aðstæðunum og til að koma fram á skýran hátt í samskiptunum.
Mörk eru mikilvægur þáttur í því að geta verið sannur og áreiðanlegur. Þessi mörk
eru „ratsjá“ okkar gagnvart umheiminum. Þau upplýsa okkur um „hluti“ eða fólk sem
við gætum rekist á. Án þessa, finnst okkur við óvarin. Mörk snúast um hvernig við
getum verið í samböndum og samskiptum við aðra. Bæði við okkar nánustu, við samstarfsfólk
og í fjölmenni. Hvað gerist inní í þér þegar einhver kemur nálægt þér? Hvaða viðbrögð
hefur þú þegar einhver vill eitthvað annað en þú?

**5. Raunveruleika- og jarðtengingarafærn**i snýst um getu manneskunnar til að viðhalda
tengingu við undirlagið / jörðina, um getuna til að kanna raunveruleikann og um 
það að vera jarðtengd og á sama tíma opin fyrir andlegri upplifun. Hún snýst um 
að upplifa veruleikann “eins og hann er” þar sem við erum stödd, hér og nú og samtímis
vera opin fyrir því óáþreyfanlega. Ef við erum mjög hröð minnkar jarðtengingin og
við fljúgum en eigum erfiðara með að lenda. Ef við erum of jarðtengd þyngist andinn,
situr fastur, kemst ekki úr sporunum og við sjáum ekki leiðina út. Við þurfum báða
þessa krafta, þá sem tengja okkur við jörðina og þá sem gera okkur kleift að létta
af okkur byrgðinni, takast á loft og fljúga þangað sem hugarflugið og ímyndunaraflið
fær notið sín. Þessi færni felur í sér að vita að veruleikinn er ekki annaðhvort
eða, heldur bæði og. “Jarðtenging er ákaflega mikilvæg fyrir líkama og sál. Jörðin
hefur gríðarlega sterkt segulsvið sem eykur heilbrigði í líkamanum og gerir manni
kleift að athafna sig betur í daglegu lífi og koma hlutum í framkvæmd. Það að vera
ójarðtengdur getur orsakað m.a. að þú missir einbeitinguna auðveldlega, átt erfitt
með að róa hugann, ofhugsar eða ferð í þráhyggju, upplifir kvíða og áhyggjur, ferð
í tilfinningauppnám og ofurneikvæðni, átt erfitt með að þola utanaðkomandi áreyti,
ert áhrifagjörn og tekur inn á þig tilfinningar annarra. Jarðtenging getur gefið
þér þér stöðugleika og tilfinningu fyrir að vera skýr, kjörnuð, sterk og einbeitt
o.s.frv.” Jóhanna Jónasar

**6. Félagsleg jafnvægisfærni** snýst um jafnvægi milli þess að vera tengd sjálfri
sér og öðrum, jafnvægi milli þess að tjá tilfinningar sínar og að geyma þær innra
með sér.

**7. Hugræn færni** snýst um að átta sig, grípa og skilja sjálfa sig og umheiminn.

**8. Orkustýringarfærni** snýst um að byggja upp, rúma og tjá kraftmikið orkuástand
og tilfinningar. Þessi færnisþáttur fjallar um að stýra orkunni, beina henni einhvert
og skrúfa upp eða niður í henni, eftir þörf og aðstæðum. Hann snýst um að rúma (
contain) og halda utan um tilfinningar, án þess að tapa tengingunni við aðra, hann
á heima í búknum og er tengdur öndun og vöðvum sem tengjast öndun.
 Ef þú andar 
kröftuglega nokkrum sinnum rís orkan í þér og að sama skapi dregur niður í henni
ef þú andar grunnt og hægt. Ef þú upplifir öndunarvöðvana fjarlæga, daufa, í uppgjöf,
skapar það yfirleitt minni löngun til að upplifa sterkar tilfinningar og kraftmikið
ástand. Orkan eða tilfinningarnar “leka út”. Við getum notað öndunina til að róa
okkur og gera okkur kleift að hugsa skýrar í erfiðum aðstæðum, andað inn með nefinu,
út um munninn og hægar út en inn. Ef öndunarvöðvar eru stífir og stirðir er haldið
aftur af tilfinningum og tjáning þeirra staðnar. Orkustýringarfærni felur í sér 
að rúma tilfinningar og að tjá þær. Við getum verið reið án þess að segja neitt 
eða bregðast við, en reiðiöldurnar bylgjast samt innra með okkur eða við getum tjáð
reiði okkar á einhvern hátt og þannig stýrt tilfinningunni. Vöðvarnir sem tilheyra
þessari færni hjálpa okkur að stýra hve mikið við tjáum og hve mikið við geymum.

**9. Framkomufærni** snýst um að stíga inn á “sviðið”, tjá sig, með augum og andliti
og hvort líkamstjáningin er upprétt og taki á móti öðrum eða álút og hikandi í að
nálgast aðra.

**10. Samskiptafærni** snýst um hæfnina til að taka inn og hafa samskipti við umhverfið.
Grípa í, halda fast, sleppa, krefjast, taka sér pláss, taka við, gefa frá sér og
taka að sér verkefni. Þessi færni tengist vöðvum í upphandleggjum, höndum, nokkrum
axlarvöðvum, vöðvum sem halda um brjóstkassa, vöðvum í kringum munn og augu, bindivef
í kringum naflann og setvöðvum. Þetta eru vöðvar sem virkjast þegar við höldum fast,
togum til okkar, ýtum frá okkur, höldum einhverju frá okkur í ákveðinni fjarlægð,
sleppum tökunum og berum eitthvað.

**11. Kynvitundunarfærni** snýst um að upplifa, bera og tjá kyn sitt, kynvitund,
kynhneigð og næmar tilfinninga
