# Mótun varnarhátta samkvæmt Bodynamic.

- Link: https://liljas.is/varnarhaettir/
- Published: 2025-10-04T16:07:33+00:00
- Author: Guðmundur Vestmann

**Varnarviðbrögð eru lífsnauðsynleg til þess að við getum lifað af. Þau bera í sér
flókið ferli og gera gagn þegar þau birtast. Þegar þau sitja áfram föst í varnarkerfi
okkar löngu eftir að hættan er liðin hjá geta þau reynst okkur hindrun í að njóta
okkar í samskiptum og upplifa lífið til fulls.**

** Varnarviðbrögð fara í tvær áttir,  ****í átt að uppgjöf og í átt að mótstöðu.**

**Í æsku byrjum við að móta varnarhætti, þá mynda þeir í okkur mis****djúpa kóða.**

**Varnarhátturinn “uppgjöf/undirspenna” myndast þegar við bregðumst við álagi í 
samskiptum með því að gefa eftir hluta af sjálfum okkur til að viðhalda tengingunni.**

**Uppgjöfin veldur undirspennu í vöðvum og bindivef, það skapar tómleikatilfinningu“
eins og eitthvað vanti…veit ekki hvað”. Þeir sem eru djúpa innprentun uppgjafar 
geta verið með svokallaðar “svartar holur” – vita ekki hvað þeir vita ekki, og taka
að sé verkefni sem þeir kunna ekki eða geta ekki, taka því að sér meira en þeir 
ráða við. **

** **

**Varnarhátturinn “mótstaða/yfirspenna” skapast þegar við bregðumst við álagi með
því að fórna tengslum við aðra til að halda tengingunni við okkur sjálf og það sem
við teljum vera okkar. **

**Þessi varnarháttur býr til brynju og þeir sem eru með mikla mótstöðu eru stífir
og yfirspenntir, með yfirspennta vöðva. Þessi varnaraháttur ýtir frá sér og á erfitt
með að hleypa að sér og opna inn. **

**Það er ákjósanlegt að geta fært sig meðvitað milli uppgjafar og mótstöðu, án þess
að læsast á öðrumhvorum staðnum. **

**Þannig sköpum við vitund um eigin styrkleika og veikleika, það skapar heilbrigt
sjálfsöryggi. **

**Þeir sem hafa “nógu” sveigjanlegan aðgang að báðum varnarviðbrögðunum búa yfir“
hvítri holu”, virku innsæi og gagnlegri innri þekkingu sem hægt er að reiða sig 
á, þeir hafa breytileg orku sem aðlagar sig eftir þörfum. **

**Allir þurfa að byggja upp varnarhætti sem mótast af þeim verkefnum sem hvert þroskaskeið
kemur með.**

**Sveigjanlegir varnarhættir eru nauðsynlegir til að takast á við lífið. **
