# Verðskrá

- Link: https://liljas.is/verdskra/
- Published: 2021-01-17T13:43:43+00:00
- Author: Guðmundur Vestmann

# VERÐSKRÁ

  |

### EINSTAKLINGSMEÐFERÐ*

 |

### 20.000 kr.

 |  
   |

### HÓPMEÐFERÐ

 |

### 7.000 kr. (per. klst.) - 󠀁[Sjá auglýsingu](https://liljas.is/hopmedferd)󠁿

 |  
 |

### NÁMSKEIÐ

 |

### 󠀁[Sjá auglýsingar](https://liljas.is/namskeid)󠁿

 |

  |

### EINSTAKLINGSMEÐFERÐ*

 |  
 |

#### 17.000 kr.

 |  
 |

### HÓPMEÐFERÐ

 |  
 |

#### 5.000 kr. (per. klst.) - 󠀁[Sjá auglýsingu](https://liljas.is/hopmedferd)󠁿

 |  
 |

### NÁMSKEIÐ

 |  
 |

#### 󠀁[Sjá auglýsingar](https://liljas.is/namskeid)󠁿

 |

# GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR

**Til upplýsingar fyrir þig í upphafi meðferðar **

**Þagnarskylda**

Samkvæmt lögum og siðareglum fagstétta er ég sem sálmeðferðarfræðingur bundin trúnaði
um þær upplýsingar sem þú veitir í  meðferðinni. Það þýðir meðal annars að ég get
ekki veitt öðrum aðila upplýsingar um þig nema með skriflegu leyfi þínu. Samkvæmt
lögum eru takmarkanir á trúnaðarskyldu heilbrigðisstarfsfólks í örfáum tilvikum,
sjá Lög nr. 34 15, Grein 17. 

**Meðferð persónuupplýsinga **

Ég legg áherslu á trúnað og öryggi við meðferð persónuupplýsinga skjólstæðinga minna
og lög um trúnaðarskyldu heilbrigðisstarfsfólks gilda um meðferð allra upplýsinga
sem og GDPR persónuverndarlögin og þar að auki lög um meðferð sjúkraskráa. 

**Um meðferðina**

Hversu lengi meðferðartímabilið varir eða hversu ört þú kemur í vitðal er algerlega
undir þér komið. Æskilegt er að koma á viku til hálfsmánaðar fresti, sér í lagi 
fyrst í stað.  Það er æskilegt að þú hugsir um hvað það eru sem þú vilt helst vinna
með og setjir þér markmið sem við ræðum, þannig er auðveldara að mæla árangur. Eftir
því sem meðferðinni vindur fram, vinnum við með fleiri þætti og þú setur þér ný 
markmið.

~ Meðferðartíminn varir í 50 mínútur.

~ Send er áminning með tölvupósti 2 dögum fyrir bókaðan tíma. 

~ Send er rukkun fyrir tímann í gegnum heimabanka, þú fær kvittun með tölvupósti
þegar 

tíminn hefur verið greiddur.

~ Verð, frá 1/9 2026: 20.000.-

~ Ef tilkynnt er afboð síðar en 24 tímum fyrir bókaðan tíma, greiðist helmingur 
af verði tímans.  

~ Meðferðin fer yfirleitt fram á stofu, stundum með rafrænum hætti og jafnvel  utandyra
ef þess er óskað.

~ Meðferðin felur í sér samtal, sál-líkamlegar æfingar,  vinnu með skynjun og upplifun.

Hér gefur að líta þá meðferð sem ég býð upp á.

## MEÐFERÐ

## EINSTAKLINGSMEÐFERÐ

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/7D710DD1-08E9-4D25-8CA5-82066A7347BB-uai-
500x500.jpg)

Ég býð þér uppá öruggt og þægilegt rými fyrir samtal og sállíkamlega vinnu. Ég get
hjálpað þér að takast á við sálræn vandamál og kennt þér gagnlegar aðferðir sem 
þú getur notað í þínu daglega lífi.

[SKOÐA](https://liljas.is/bodynamic/)

## HÓPMEÐFERÐ

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/CD337DBB-AFF2-467B-A975-9B25939AE657-uai-
934x934.jpg)

Í áratugi hafa farið fram víðtækar rannsóknir á gagnsemi hópmeðferðar. Niðurstaðan
er að hún er jafn áhrifarík og einstaklingsmeðferð þegar unnið er með þunglyndi,
kvíða, langvinna sorg, tilvistarvanda og fleira.

[SKOÐA](https://liljas.is/bodynamic/)

## NÁMSKEIÐ

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/EA110B7D-1743-4EEB-923C-DF532492F944-uai-
396x396.jpg)

Á námskeiðunum vinnum með sállíkamlegar aðferðir Bodynamic kerfisins að því að efla
líkamsvitund og sálræna færni. Þetta gerum við saman í öruggu umhverfi.

[SKOÐA](https://liljas.is/bodynamic/)

## ÁFALLAMEÐFERÐ

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/afallamedferd-uai-1042x1042.jpg)

Bodynamic áfallameðferð losar um áföll sem sitja í líkamanum, hjálpar þér að lenda
þeim, vinna úr þeim og raða saman brotunum upp á nýtt og upplifa bata.

[SKOÐA](https://liljas.is/bodynamic/)

## MEÐFERÐ Á NETINU

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/IMG-2622-uai-334x334.jpg)

Ég býð einnig upp á þann möguleika að stunda meðferðina í gegnum netið. Hafðu samband
ef þú hefur áhuga.

[SKOÐA](https://liljas.is/bodynamic/)

## ÚTI Í NÁTTÚRUNNI

![](https://liljas.is/wp-content/uploads/1903F537-8F3C-445B-9F57-E1304C0084D4-uai-
740x740.jpg)

Það er áhrifaríkt að gera sállíkamlegar æfingar undir berum himni og sálmeðferðarsamtal
er líka öflugt úti í náttúrunni.

[SKOÐA](https://liljas.is/bodynamic/)
