# Viska líkamans námskeið 8. apríl til 6. maí 2021

- Link: https://liljas.is/viska-likamans-namskeid-8-april-til-6-mai-2021/
- Published: 2021-02-24T14:50:37+00:00
- Author: Lilja

# Viska Líkamans – Bodynamic sállíkamlegt hópnámskeið fyrir konur

Á þessu námskeiði munum við beina athygli okkar inná við, inn í líkamann og æfa 
okkur í að hlusta og skynja hvað hann er að segja okkur. Þetta gerum við í öruggu
umhverfi, þar sem virðing og umhyggja fyrir hvor annarri stýrir ferðinni. Við förum
okkur að engu óðslega, hér felast gæðin í því að mæta því sem er og gefa tíma og
rými fyrir hverja upplifun.

Við vinnum með æfingar sem styrkja upplifun okkar á eigin kjarna á margvíslegan 
hátt.

Við vinnum með jörðina, hvernig hún mætir okkur í gegnum ilina og sendir kraft upp
í gegnum allan líkamann, hvernig þyngdarkrafturinn virkar og hvað líkaminn gerir
til þess að við höldumst uppréttar. Í gegnum okkur bylgjast kraftar frá himni og
jörð, við æfum okkur í að upplifa þessa krafta meðvitað og að jarðtengja andlega
upplifun.

Við vinnum með að skynja hvar mörk okkar liggja og setja mörk á fjölbreytilegan 
hátt og tengja okkur við kraftinn sem rís innanfrá og segir stop þegar einhver er
í þann veginn að ganga yfir okkar mörk.

Við vinnum með að skynja og þekkja búkinn okkar sem er rýmið þar sem tilfinningar
rísa og hnýga eins og bylgjur, hvernig við getum stýrt þessum bylgjum og róað þegar
mikið liggur við, til að halda einbeitingunni og stýra viðbrögðum okkar.

Að vinna að sálrænni uppbyggingu í gegnum líkamann er mjög styrkjandi fyrir persónuleikann,
við verðum meðvitaðari, meira til staðar hér og nú og lærum að þekkja og virða þau
skilaboð sem líkaminn sendir okkur. Við lærum að njóta samveru og nándar án þess
að tapa eigin fyllingu og staðfestu.

## Praktískt

Hámarksþáttaka 6, lágmark 4.

Námskeiðið er 5 skipti, einu sinni í viku.

Tímasetning: Fimmtudagskvöld frá kl. 18:30-20 :30, fyrsta skipti 8. apríl síðasta
skipti 6. maí 2021.

Leiðbeinandi: Lilja Steingrímsdóttir, Bodynamic Sál- og áfalla-meðferðarfræðingur.

Verð 35.000.- pr. mann.

Staðsetning: Þverholt 14, 3. Hæð, Shalom Meðferðarstöðin.

Áhuga á þátttöku tilkynnist í netfang: lilja@liljas.is eða í gegnum síma 8396609

Innifalið: Útprentað hefti, samantekt um allt sem farið hefur verið í á námskeiðinu,
í lok námskeiðis. Hressing í héi, te og brauðbolla með osti ofl.

Tvisvar til þrisvar sinnum á námskeiðinu mun í lok tímans vera boðið uppá stutta
Yoga Nidra slökun sem Edda Jónsdóttur jógakennari leiðir.

 
