Að ákveða að fara í sálmeðferð er mikilvæg og persónuleg ákvörðun sem á sér oft langan aðdraganda. Flestir ákveða að leita sér hjálpar af því að eitthvað er orðið of sársaukafullt og vilja losna undan þjáningunni.
Sálmeðferð vinnur að því að losa um gömul og úrelt munstur viðbragða og auka sjálfþekkingu. Það eru engin vandamál of stór eða lítil til að byrja að gera eitthvað í málinu, aldrei of seint að uppgötva eitthvað nýtt.
EINSTAKLINGSMEÐFERÐ
EINSTAKLINGS-MEÐFERÐ

“Það sýnir sig oft í líkamlegum einkennum ef okkur skortir andlega næringu til lengri tíma, svo sem höfuðverkur, vöðvaspenna, svimi, svefntruflanir, náladoði, hjartsláttur, lystarleysi eða ofát.“

Sama hver ástæðan er fyrir því að þú kemur í sálmeðfeð reyni ég í gegnum nærveru að skapa rými þar sem er pláss fyrir þig til að vera þú sjálf(ur), með allt það sem þú kemur með.
Ég mun styðja þig þegar þú ferð að sjá og skilja meira samhengið í hlutunum og þitt eigið hegðunarmunstur, þínar tilfinningar og ímyndanir um sjálfa(n) þig.
Ég vil hjálpa þér að uppgötva fleiri valmöguleika og nýjar hliðar á þér. Vandamálin dagsins í dag eiga oft rætur í æsku þegar við lærðum að hugsa, haga okkur og finna til. Mörg okkar glíma við þroskaáföll sem sitja í okkur og geta valdið því að við eigum í sjálfsniðurrífandi samtali við okkur sjálf og neikvæðum samskiptum við umheiminn. Sálmeðfeð er úrvinnsluferli til að losa um og mæta því sem aflaga fór með mildi og samkennd svo hægt sé að taka við ábyrgðinni á eigin lífi.
Bodynamic sálmeðferð er sniðin að þörfum þínum, er sveigjanleg og skapandi. Hún býður uppá samtal, sállíkamlegar æfingar og ýmsar aðferðir sem snúast um að vekja og styrkja færni sem hefur legið í dvala.
Sálmeðfeð snýst ekki um að breyta sjálfum sér, heldur um að vera maður sjálfur.