UM MIG
Ég heiti Lilja Steingrímsdóttir og starfa sem Bodynamic sálmeðferðarfræðingur. Meðferðin sem ég veiti er líkams og upplifunarmiðuð sálræn meðferð.
Ég lærði Bodynamic sálmeðfeð í Danmörku í fjögur ár og áfallameðferð í eitt ár og er meðlimur í fagfélagi danskra Sálmeðferðarfræðinga MDF. Ég er í stöðugri í handleiðslu samhliða starfi og vinn að mínum eigin sálræna og faglega þroska með ýmsum aðferðum.
Ég býð þér uppá öruggt og þægilegt rými fyrir samtal og sállíkamlega vinnu, ég get hjálpað þér að takast á við sálræn vandamál og gefið þér gagnlegar aðferðir sem þú getur notað í þínu daglega lífi. Vandamál þín og lífsreynsla er það sem meðferðin mótast eftir.
Ég hef starfað sem hjúkrunarfræðingur til fjölda ára, lengst af við barna og fjölskylduhjúkrun. Ég er einnig með diplómapróf í hómópatíu frá 1998, 2007 útskrifaðist ég með diplómapróf frá HÍ í hjúkrunarstjórnun, árið 2012 útskrifaðist ég sem gönguleiðsögumaður frá MK og ég er búin með 2/3 hluta af námi í flotmeðferð hjá Flothettu. Ég hef áhuga á skapandi meðferðarsambandi og á óhefðbundnum og einstaklingsmiðuðum leiðum til heilbrigðis og þroska. Ég bý í 101 Reykjavík með danskri kærustu og hundinum okkar henni Sögu (border terrier), ég á eina uppkomna dóttur sem býr stein snar frá mér. Áhugamál mín eru náttúran, tónlist og skapandi samhengi, sama hvaða nafni það nefnist.