
Lilja Steingríms býður uppá sálmeðferð sem felur í sér samtal með sállíkamlegri nálgun og EMDR meðferð.
Sálmeðferð styður þig í átt að sjálfskilningi og sátt. Hún hjálpar þér að koma auga á og tengjast bjargráðum þínum og sjá hvað hægt er að gera til að stuðla að breytingum. Varanlegar breytingar gerast yfirleitt smátt og smátt, sjaldan í stórum stökkum.
Það geta verið sársaukafullar upplifanir snemma á lífsleiðinni sem mótuðu varnarmunstur sem í dag valda sárauka og vandræðum, eða áföll síðar á lífsleiðinni sem hamla því að þú njótir hæfileika þinna og líðir vel í eigin skinni.
Sálmeðferð á að hjálpa þér að skilja og afkóða ómeðvituðu varnarmunstur og sýna þér fram á fleiri valkosti í lífinu.
Það sem við getum gert er að reyna að átta okkur á hvað gagnrýnisraddirnar innra með okkur eru að verja og fikra okkur síðan áfram og skoða hvort aðrir möguleikar séu til í stöðunni. Hægt og bítandi, sýna sjálfum sér samkennd og mildi í hverju skrefi. Það að beita sig hörku og dæma sjálfa sig hefur öfug áhrif, gerir ekki neinum gott.
Þegar sálræn færni er sett í samhengi við líkamann er hún ekki lengur bara hugmynd heldur líka áþreyfanleg, eitthvað sem hægt er að upplifa og þjálfa.
Aðstæður í lífi okkar geta gert það að verkum að sum sálræn færni dregst saman á meðan önnur styrkist, verður meira áberandi og tekur á sig megnið af álaginu.
Það er aldrei of seint að þjálfa upp og styrkja sálræna færni. Í Bodynamic meðferð skoðum við hvaða sálræna færni er sterkust og hverja má draga fram og efla.
,,Endurtekin reynsla geymist í líkamanum og verður að staðreynd.“ Gáfaða dýrið – Sæunn Kjartansdóttir.
Líkamsmiðuð sálmeðferð leggur áherslu á tengslin milli tilfinninga, hugar og líkama. Líkaminn geymir allt og tjáir allt á einhvern hátt. Hann geymir visku genginna kynslóða og færir okkur til líðandi stundar, hér og nú.
Til þess að vinna úr áföllum er nauðsynlegt að vinna sálrænt í gegnum líkamann, losa um frosin viðbrögð og ómeðvitaðar skaðlegar innprentanir.
Engum okkar er lífið bara leikur, við göngum öll í gegnum erfiðleika, sorgir, vonbrigði og missi. Sársauki er óumflýjanlegur – og – hann er ekki tilgangslaus.
Allur sársauki ber með sér skilaboð um eitthvað sem skiptir máli. Kannski opnar hann augu okkar fyrir sannleika sem við höfum forðast að horfast í augu við.
Sársauki krefst þess að við þroskumst, hann neyðir okkur til að staldra við, íhuga og endurskoða. Hann sýnir okkur raunveruleikann, hann sýnir okkur hvað í raun og veru skiptir máli.
Lærdómurinn kemur kannski ekki samstundis, en á endanum kemur hann – þegar það gerist, breytist eitthvað innra með okkur, við verðum vitrari, sterkari, meðvitaðri. Stundum kaldari, stundum mildari, við verðum aldrei alveg eins.
Á endanum snýst þetta ekki bara um að lifa sársaukan af – heldur um að umbreytast og þroskast vegna hans.
Horfst í augu við….
Kvíði og ótti eru eðlilegir hlutar af okkar innra lífi, við gætum ekki lifað án þessara tilfinninga. Þær halda okkur vakandi, vísa vegin, hjálpa okkur að finna lausnir og byggja upp seiglu.
Áföll og þroskaáföll í æsku draga úr getu okkar til að vinna úr kvíða og ótta. Æskilegt er að vinna úr og fara í gegnum áföll og erfiðleika, leiðin áfram er í gegn.
Við þurfum að hafa fyrir því, jafnvel berjast fyrir því að ná meiri andlegum þroska og öðlast frelsi undan því sem hefur íþyngt okkur lengi. Það er engin auðveld leið til. Betra að vita það. Eina leiðin er áfram og í gegn.
Gamlir varnarhættir úr æsku búa í líkamanum fram á fullorðinsár, oft án þess að við áttum okkur á því. Í líkamanum geymist saga tilfinninga okkar.
Ef við rekum okkur ítrekað á sömu veggina getur verið að við séum föst í gömlum varnarháttum.
Þó við reynum að fela tilfinningar okkar og líðan, lætur líkaminn ekki blekkjast. Hann gefur alltaf til kynna á einhvern hátt hvernig okkur líður.
Samband okkar við okkur sjálf er mikilvægasta sambandið sem við getum ræktað í þessu lífi. Gæði annarra sambanda ræðst af gæðunum sambandsins við okkur sjálf.
Af hverju sálmeðferð? Lífið ber óhjákvæmilega með sér breytingar, áföll og allskonar álag sem getur verið strembið að aðlagast og vinna úr. Sálmeðferð auðveldar úrvinnslu og jákvæðar breytingar hjá þeim sem leita að betri tilfinningalegri og félagslegri virkni.
Sálmeðferð er mislöng, eftir því hvert markmiðið hennar er. Áður en meðferð hefst er gott að setja sér markmið um það hvað það er sem maður vill fá út úr meðferðinni.
Það þarf hugrekki að ákveða að fara í sálmeðferð. Það getur verið kvíðavaldandi að finna sér góðan og heppilegan meðferðaraðila, sérstaklega ef þú ert að ganga í gegnum krefjandi tíma og sársaukafullar tilfinningar og upplifanir.
Kannski er ástæðan fyrir því að þú leitar að sálmeðferðarfræðingi að þig þyrstir í að eiga samtal og vinna með sjálfa þig þannig að þú öðlist meiri þroska og sjálfsskiilning, af því þú vilt vaxa sem manneskja!
Þú hefur val. Það er mikilvægt að vera meðvituð um að við stöndum alltaf frammi fyrir valkostum. Í sálmeðferð skoðum við hvaða valkostir blasa við í lífi þínu í dag.

UM LILJU STEINGRÍMSDÓTTUR
Ég heiti Lilja Steingrímsdóttir og starfa sem Bodynamic sálmeðferðarfræðingur. Ég býð þér uppá öruggt og þægilegt rými fyrir samtal og sállíkamlega vinnu. Mitt hlutverk er að styðja við þig í þeirri vinnu sem þú treystir þér í og sýna þér leiðir sem geta gagnast þér og aukið færni þína og sjálfskilning.




