MEÐFERÐARSAMNINGUR

  1. PRUFA. Eftir að meðferðarsambandi er komið á (tekur yfirleitt 3-6 skipti) finnum við það sem brýnast er fyrir þig að vinna með og þú setur þér markmið um þær breytingar sem þú óskar eftir. Eftir því sem meðferðinni vindur fram setur þú þér fleiri markmið.
  1. Meðferðin fer yfirleitt fram á stofu en stundum með rafrænum hætti ef þú óskar þess og jafnvel utandyra, úti í náttúrinni. Sjaldnar en hálfsmánaðarlega er ekki ráðlegt að koma í tíma til að rjúfa ekki samfelluna sem þarf til að halda áfram þeirri vinnu sem á sér stað í meðferðinni.
  1. Ég er bundin þagnarskyldu á allar þær upplýsingar sem þú veitir í meðferðinni.
  1. Ef þú vilt hætta meðferðinni eftir að meðferðarsambandi er komið á (eftir u.þ.b. 6 skipti) er æskilegt að þú komir í einn tíma enn til að ljúka meðferðinni á uppbyggilegan hátt.
  1. Ef það berast afboð frá þér seinna en 24 tímum fyrir bókaðan tíma áskil ég mér rétt til þess að óska eftir hálfu gjaldi fyrir ónýttan tíma.  Ef ég hins vegar tilkynni þér seinna en 24 tímum fyrir bókaðan  tíma að ég þurfi að flytja tímann, færð þú næsta tíma á hálfvirði.  Ef þú kemur of seint, lengist ekki bókaður tími.