
EMDR (Eye Movement Desensitization and Reprocessing) er gagnreynd sálfræðileg meðferð þróuð í þeim tilgangi að hjálpa fólki að vinna úr margskonar tilfinningu álagi vegna áfalla og annarra erfiðleika.
Meðferðin notar tvíhliða augnhreyfingar – eða aðra tegund tvíhliða örvunar – til að hjálpa heilanum að vinna á öruggan hátt úr sársaukafullum minningum sem sitja óheppilega í minnisneti heilans með skaðlegum afleiðingum fyrir líðan okkar og viðbrögð.
Tvíhliða örvunin hjálpa heilanum að flokka gamlar áfallaminningarnar rétt, þannig að þær verða hlutlausar frekar en skaðlegar.
Þú þarft ekki að lýsa áfallinu í löngu og sársaukafullu máli, muna allt sem tengist vanlíðan þinni eða endurlifa atburðinn að fullu.
EMDR meðferð gagnast við úrvinnslu á ýmiskonar áföllum, við áfallastreituröskun (PTSD), við kvíða, þunglyndi, margskonar tengslavanda, ofsakvíða, fælni og langvinnri sorg.