Skynja-Tengja-Upplifa sumarnámskeið fyrir konur 30. júní-4. júlí og 5. júlí til 9. júlí 2025
Fjórða sumarið í röð býður Lilja Steingrímsdóttir sálmeðferðar-fræðingur, hjúkrunarfræðingur og gönguleiðsögumaður uppá hið vinsæla sumarnámskeið ~Skynja / Tengja / Upplifa~
á dásamlegum stað, Birkimel á Barðaströnd.
Hóparnir eru litlir, mest 11, minnst 8, þannig ná allar fljótt og vel saman, það skapar traustan grunn fyrir upplifanir og sterkar tengingar.
Innifalið í verði:
~ Gisting í fjórum 2ja manna herbergjum og einu þriggja manna í 4 nætur.
~ Styrkjandi hópefli og gagnlegar sál-líkamlegar Bodynamic æfingar.
~Þrjár leiðsagðar 3-5 klst göngur í dásamlegri náttúru Barðastrandar, með áherslu á að skynja, tengja og upplifa.
~Allur matur (og ekki af verri endanum).
~Ótakmarkaður aðgangur að sundlaug og heitum potti í 100 metra fjarlægð.
~Flot og flotmeðferð með Flothettugræjum í sundlauginni.
~Hressandi morgunæfingar úti undir berum himni og teygjur á hverjum morgni.
~Slökun og hugleiðsla fyrir svefninn.
~Grill, söngur, leikur og dans á lokakvöldinu.
Verð er 130.000.- pr mann
Greiða þarf 35.000.- staðfestingargjald fyrir 15. mars 2025. Staðfestingargjaldið er ekki endurgreitt.
Námskeiðið þarf að vera greitt að fullu fyrir 2. júní.
Hægt er að semja um meiri sveigjanleika á greiðslum ef þörf er á.
Þátttakendur fá skjal sem staðfestir þátttöku á 20 klst. sjálfstyrkingarnámskeiði með áherslu á sál-líkamlega heilslueflingu, virka skynjun, streytulosun og hópefli.
Skjalið og kvittun má nota til að sækja um styrk hjá stéttafélagi.
Þátttakendur koma á eigin bílum, mæting kl. 14 fyrsta daginn. Við reynum að sameinast í bíla eins og hægt er.
Námskeiðinu lýkur formlega kl. 10 síðasta daginn.
Áhugasamar geta fengið meiri upplýsingar eða skráð sig með því að senda Lilju tölvupóst, lilja@liljas.is, hringja í hana í s.8396609, eða senda henni skilaboð með messenger.
Námskeiðin síðustu þrjú sumur tókust frábærlega og skildu eftir sig dýrmætar minningar og góð tengsl.
Ummæli þátttakenda fyrri STU námskeiða:
Þátttakandi í STU sumarnámskeiði 2024:
“Ég var ánægð með skipulagið, hvenig allt fékk pláss á afslappaðan hátt og í flæði, samt var mjög margt sem við náðum að gera. Mér fannst frábært að vera með þessa góðu blöndu af göngum, náttúruupplifun, andlegri næringu, vönduðum mat og afslappaðri og nærandi samveru. Ég er þakklát fyrir hversu vel var komið til móts við mínar kröfur um mataræði.
Takk innilega fyrir þessa dásamlegu upplifun.”
Helga Arnalds, leikstjóri, leikskáld og leirlistakona
Þátttakandi í STU sumarnámskeiði 2024:
“Gott skipulag, hæfilega erfiðar göngur, mjög góður matur og nesti, fjölbreyttar gönguleiðir, afslappað umhverfi, fín gisting, falleg náttúra, góður og skemmtilegur hópur og faglegur og kærleiksríkur stjórnandi. Flott að hafa sundlaug steinsnar. Ég er mjög ánægð með námskeiðið og mun hiklaust mæla með því.”
Berglindi Jack, menntaskólakennari og leiðsögumaður.
Þátttakanndi í STU sumarnámskeiði 2023:
“Þessi ferð var dásamleg og einstök frá upphafi til enda. Það var bara allt svo ljúft, gott og endurnærandi. Nutum sannarlega góðs af fjölbreyttri reynslu og þekkingu Lilju, sjálfsvinnan hæfileg og skemmtileg, stemmningin í hópnum góð frá fyrstu stund og maturinn svooo góður. Allt undirbúið af alúð og kærleika. Svo býr Barðaströndin yfir mikilli náttúrufegurð og þar gengum við um ósnortna náttúru og eyðibyggðir.”
Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða.
Þátttakandi í STU sumarnámskeiði 2022
“Námskeiðið Skynja-Tengja-Upplifa stóð svo sannarleg undir væntingum, var heilt ævintýri frá upphafi til enda. Ég kom ein á námskeiðið en fann mig starx sem hluta af hópnum. Lilja hefur einstaklega gott lag að að sameina hópinn bæði með æfingum sem við gerðum undir hennar leiðsögn, en ekki síður með sinni einstaklega góða nærveru. Barðaströndin er dásamlegur staður að vera á með allri sinni náttúrufegurð, þar við nutum þess að fara í göngur, synda í sjónum og anda að okkur fersku fjallaloftinu, svo ég tali nú ekki um matinn sem var dýrðlegur.
Ég gef Lilju og þessu námskeiði mín bestu meðmæli og mæli hundrað prósent með því fyrir líkama og sál.”
Halla Ingimundardóttir, Þroskaþjálfi.
Lilja Steingrímsdóttir er með 20 ára reynslu af að skipuleggja og leiða hópa í göngum og náttúruupplifunum, hér eru ummæli frá nokkrum sem þekkja til hennar ferða:
“Lilja er einstakur leiðsögumaður, traust, útsjónarsöm og skemmtileg. Hún skynjar vel ólíkar þarfir innan hóps og er með sérstaklega góða nærveru. Ég fer í gönguferð undir hennar stjórn á hverju sumri og hef gert til fjölda ára. Það eru sannarlega mín bestu meðmæli”.
Edda Jónsdóttir, grunnskóla- og jógakennari.
“Lilja hefur einstakt lag á að gera ferðir sínar að mikilli ævintýraupplifun. Ferðir Lilju einkennast af góðu skipulagi þar sem hugsað er af natni út í öll smáatriði. Það sem ég kann samt best að meta er að Lilju tekst svo vel að skapa afslappaða og skemmtilega stemningu”.
Unnur Valdís Kristjánsdóttir, hönnuður og stofnandi Flothettu.
“Ég hef farið í göngu um hálendið með Lilju í fimm ár. Þettar eu skemmtilegar ferðir sem reyna á mig, bæði andlega og líkamlega. Lilja er frábær skipuleggjandi sem birtist í því að hún er flink í að “delegera” og að dreifa ábyrgðinni, en hún er jafnframt með skýra sýn og góða yfirsýn. Hún er fljót að lesa í aðstæður og skynja dýnamíkina í hópnum. Hún er gleðigjafi og alltaf gaman þegar hún dregur upp Ukuleleið sitt og brestur í söng. Mér finnst ég alltaf vera örugg með Lilju þó ég sé stödd á hjara veraldar (Óbyggðum). Hún hefur með góðu fordæmi fengið mig til þess að öðlast meira traust á sjálfri mér og eigin getu. Hún er klettur, hún er jörð, en hún er líka haf og himinn!.”
Birna Bragadóttir myndlistamaður og hagfræðingur.