28. jan – 25. feb: Bodynamic sállíkamlegt hópnámskeið fyrir konur

Á þessu námskeiði munum við beina athygli okkar inná við, inn í líkamann og æfa okkur í að hlusta og skynja hvað hann er að segja okkur. Þetta gerum við í öruggu umhverfi, þar sem virðing og umhyggja fyrir hvor annarri stýrir ferðinni. Við förum okkur að engu óðslega, hér felast gæðin í því að mæta því sem er og gefa tíma og rými fyrir hverja upplifun.

Við vinnum með æfingar sem styrkja upplifun okkar á eigin kjarna á margvíslegan hátt.

Við vinnum með jörðina, hvernig hún mætir okkur í gegnum ilina og sendir kraft upp í gegnum allan líkamann, hvernig þyngdarkrafturinn virkar og hvað líkaminn gerir til þess að við höldumst uppréttar. Í gegnum okkur bylgjast kraftar frá himni og jörð, við æfum okkur í að upplifa þessa krafta meðvitað og að jarðtengja andlega upplifun.

Við vinnum með að skynja hvar mörk okkar liggja og setja mörk á fjölbreytilegan hátt og tengja okkur við kraftinn sem rís innanfrá og segir stop þegar einhver er í þann veginn að ganga yfir okkar mörk.

Við vinnum með að skynja og þekkja búkinn okkar sem er rýmið þar sem tilfinningar rísa og hnýga eins og bylgjur, hvernig við getum stýrt þessum bylgjum og róað þegar mikið liggur við, til að halda einbeitingunni og stýra viðbrögðum okkar.

Að vinna að sálrænni uppbyggingu í gegnum líkamann er mjög styrkjandi fyrir persónuleikann, við verðum meðvitaðari, meira til staðar hér og nú og lærum að þekkja og virða þau skilaboð sem líkaminn sendir okkur. Við lærum að njóta samveru og nándar án þess að tapa eigin fyllingu og staðfestu.

Praktískt

Hámarksþáttaka 8, lágmark 4.

Námskeiðið er 5 skipti, einu sinni í viku.

Tímasetning: Fimmtudagskvöld frá kl. 18:30-20
:30, fyrsta skipti 28. Janúar síðasta skipti 25. Febrúar 2021.

Leiðbeinandi: Lilja Steingrímsdóttir, Bodynamic Sál- og áfalla-meðferðarfræðingur.

Verð 20.000.- pr. mann.

Staðsetning: Þverholt 14, 3. Hæð, Shalom meðferðarstöðin.

Áhuga á þátttöku tilkynnist í netfang: listeing@gmail.com eða Messenger á FB.

Innifalið: Útprentað hefti með útskýringum sem hægt er að skrifa í glósur og minnisatriði.
 Hressing í héi, Te, kaffi og brauðbolla með osti.

Tvisvar til þrisvar sinnum á námskeiðinu mun í lok tímans vera boðið uppá stutta Yoga Nidra slökun sem Edda Jónsdóttur jógakennari leiðir.

Það er möguleiki á framhaldsnámskeiði með svipuðu sniði þar sem við vinnum áfram með sömu þætti og á Námskeiði I en bætum við fleiri færnisþáttum svo sem getunni til að eiga í samskiptum og tengjast öðrum, getunnu til að upplifa reisn, stíga fram á sviðið og halda sér gangandi, virkja vitræna úrvinnslu…o.s.frv.