
“Lífsreynsla okkar speglast í vöðvaspennu líkamans: Hvernig við upplifum að okkur sé mætt af öðrum hefur mikil áhrif á það hvernig við mætum fólki.“
Bodynamic lítur svo á að sjálfsvitundin búi í líkamanum (,,Body ego”).
Bodynamic
Bodynamic er líkamsmiðað sálfræðikerfi og þroskasálfræðimódel sem Lisbeth Marcher og samstarfsmenn hennar þróuðu í Danmörku á áttunda áratugnum.
Bodynamic hefur kortlagt 7 þroskaskeið. Á hverju skeiði virkjast tilteknir vöðvar, sálrænni færni (ego functions), og persónugerð (Caracter structur). Persónugerð, líkamstjáning og sálræn færni mótast í takt við þroskaverkefnin sem mætir barninu.
Þessi nálgun hefur lagt grunninn að Bodynamic meðferðinni sem miðar að því að græða áföll og endurheimta jafnvægi líkama, tilfinninga og huga.
Kjarninn í Bodynamic snýst um samþættingu líkama, tilfinninga og huga. Bodynamic heldur því fram því að líkami og vöðvar geymi sögu okkar og tilfinningaleg mynstur sálfræðilegs vaxtar frá barnæsku og áfram.
Í Bodynamic er lögð áhersla á náið samspil gagnkvæmra tengsla (connection) annars vegar og sjálfsvirðingar hins vegar (dignity).
Bodynamic meðferð notar blöndu af sállíkamlegum aðferðum og samtali til að hjálpa skjólstæðingum að endurheimta heilbrigði.
Flestir eru sammála um að það sé í gegnum líkamann sem við lærum (með góðu eða illu) hvernig á að vera í heiminum og að “sjálfið” okkar mótist snemma sem svörun við allskonar samskiptum við foreldra, aðra og umheiminn.
Þroskasálfræðimódel Bodynamic
Bodynamic hefur kortlagt samhengið milli spennustigs í vöðvum og mótun varnarhátta. Varnarviðbrögð fara í tvær áttir, í átt að eftirgjöf/uppgjöf og í átt að mótstöðu.
Börn fæðast með ákveðna forskrift að þroska, áætlun um hvaða eigi að þjálfa og byggja upp á hverju þroskaskeiði. Hversu vel börnum vegnar á einu skeiði byggist að miklu leiti þeim fyrri. Það eru þarfir og kraftur barnsins sem knýr líkamann áfram, þannig þroskast taugakefið og vöðvarnir í takt við sálrænan drifkraft barnsins.
Ákjósanlegt er að barnið, þegar barnið kemur með þarfir sínar og kraft, upplifi að því sé mætt á sannan og sanngjarnan hátt, upplifi sterk og stöðug tengsl og að það sé séð og það sé hlustað á það. Þannig þroskar barnið með sér heilbrigð og sveignanleg viðbrögð.
Ef barn upplifir að það megi ekki vera eins og það er eða að því sé ekki mætt og ekki hlustað á það, geta varnarviðbrögð þess verið í formi uppgjafar eða mótstöðu. Þessi sálræna spenna uppgjafar eða mótstöðu er partur af varnarkerfi okkar og verndar okkur gegn tengslarofi og tilfinningalegu álagi.
Hlutverk Bodynamic er að hjálpa fólki sjá hvar líkamnum værnarhættirnir eru geymir, hvað virkjar þá, hvernig þeir birtast og hversvegna þeir eru til komnir.
Sálrænir færnisþættir
Þegar sálræn færni er sett í samhengi við líkamann er hún ekki lengur bara hugmynd heldur líka áþreyfanleg, eitthvað sem hægt er að upplifa og þjálfa.
Bodynamic hefur skilgreint 11 sálræna færnisþætti sem búa í okkur öllum. Nokkur dæmi um þessa sálrænu færni er; að setja og skynja mörk, hafa kjarna, jarðtengjast og skynja raunveruleikan og geta tengst öðrum osfr. Að sjá sálræna færni á þennan hátt gerir okkur betur kleift að meta, styðja við og auka persónulega virkni .
Bodymap - Sálrænt líkamskort
Bodynamic hefur þróað aðferð til að mæla spennumunstur í vöðvum og setja fram í “Bodymap”. Bodymap er gagnlegt hjálpartæki í meðferð, þar sést í hve ríkum mæli innprentun uppgjafar eða mótstöðu situr í vöðvunum og gefur til kynna hvaða varnarhættir hafa mótast og hvenær.
Lagskipting sjálfsins
Kjarni sjálfsvitundar okkar hvílir í líkamssjálfinu. Út frá líkamssjálfinu byggjast upp sífellt þróaðari lög sjálfsvitundar: Fyrst eftir fæðingu upplifum við lífið nær eingöngu með líkamanum (body ego), síðan um 12-15 mánaða bætist við einstaklings-sjálfið (individual ego), um 2,5 árs aldurinn byrjum við að þroska með okkur hlutverka-egóið (role -ego) og um um 5-7 ára aldurinn þroskast með okkur athugandi-egóið (observing ego), þar á eftir, skamkvæmt módeli Bodynamic um egósviðin, kemur til hið svokallað samþætt-egó (integrative ego). Sjötta laginu, sem kallast Æðra sjálfið (“Higher self”) er stundum verið bætt við. Þá erum við ekki lengur á sjálfvirkt stillt inní varnarhætti persónuleika okkar og notum í æ ríkari mæli þróaðari hluta heila og taugakerfis í að vinna jafnóðum úr aðstæðum. Við erum þá að tala um að geta sýnt samkennd, þolinmæði, umburðarlyndi, vera skapandi, forvitin oþh.
Bodyknot
Bodyknot líkanið fjallar um að greina og leysa ágreining og greiðir flækjur. Talað mál er oft ónákvæmt tjáningaform og getur auðveldlega skapað misskilning sem kallar á viðbrögð. “En ég hélt að …” “Sagðir þú ekki….?”Kannski gerir maður eitthvað í þeirri trú að það muni gleðja sem svo reynist ekki vera rétt mat, eða þú telur þig fylgja innsæinu og það reynist alrangt eða óheppilegt.