6. – 11. maí. – Hlédrag í Húsi drekaflugunnar.
6. maí. Flogið til Málaga, keyrt í rútu til Húss Drekaflugunnar í um klukkutíma.
Eftir kvöldmat hittist hópurinn í jógasalnum, farið verður yfir dagskrána framundan, hópurinn hristir sig saman og slakar svo á í lok dags með jóga nidra.
7. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.
Samvera í Jógasalnum milli kl. 11 og 12.
Þær sem það hafa valið, ganga Caminito del Ray, litla Konungssstiginn. Hópurinn er sóttur kl. 13:45 , gangan byrjar 14:45 og tekur uþb 2. Komið er til baka milli kl. 18 og 18:30.
Kakó seremónía með Helen um kvöldið.
8. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.
Ólívuakur er skoðaður og við fræðumst um ólífuræktun og ólífuolíur.
Samvera og Jóga nidra fyrir svefninn.
9. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.
Gönguferð í El Torcal de Antequera fjallgarðinum, ganga sem er á flestra færi.
Á heimleiðinni komum við við í borginni Antequera og skoðum eitthvað áhugavert þar.
Tónheilun með Rocio í jógasalnum eftir kvöldmat.
10. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.
Frjáls tími eftir morgunmat.
Um eftirmiðdagin er Hópeflandi samvera með sállíkamlegu ívafi
Á þessu síðasta kvöldi í Húsi Drekaflugunnar komum við saman í jógasalnum skemmtum okkur með heimatilbúinni dagskrá, söngi og dansi.
11. – 13. maí Ronda og Málaga
11. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.
Kl. 10 eftir morgunmat, er hópurinn sóttur og keyrður til Ronda. Þar skoðum við nokkra merka staði svo sem hina fornu brú yfir gilið.
Við keyrum seinnipartinn á hótelið í miðborg Málaga þar sem við gistum tvær síðustu næturnar.
12. maí. Við bjóðum uppá gönguferð um skemmtilega staði í Málaga í bland við búðaráp.
Málaga er talin vera ein elsta borg Evrópu, hún geymir enn sína gömlu stemningu og margar gamlar hefðir.
Borgin er mátulega stór og auðvelt er að skoða sig um í henni. Þar eru frábærir markaðir og fornar götur til að rölta um.
Um kvöldið hittumst við allar og borðum saman á veitingastað í miðborginni.
13. maí. Heimferðardagur. Flug til Íslands er yfirleitt um eftirmiðdaginn, upplagt er að nota tímann þangað til í að skoða Málaga enn betur og njóta þess að upplifa andrúmsloftið í þessari mögnuðu borg.


