Caminito del Ray

Caminito del Rey er víðfrægur göngustígur sem liggur meðfram bröttum veggjum þröngs gljúfurs í El Chorro gili nálægt Ardales í Málaga-héraði í Andalúsíu.  Upphaflega lvar stígurinn lagður fyrir starfsmenn við vatnsaflsvirkjanirnar við Chorrofossa og Gaitanejofossa svo þeir gætu farið á milli. Framkvæmdirnar við virkjanirnar hófust árið 1901 og þeim lauk árið 1905. Alfons XIII konungur fór yfir göngustíginn árið 1921 til að vígja stífluna, Conde del Guadalhorce, þannig varð stígurinn þekktur undir nafninu Litli Konungsstígurinn eða Caminito del Ray.

Í byrjun 21 aldar var hann kominn í niðurníðslu og hættulegur, því var hann að hluta til lokaður í meira en áratug. Eftir margra ára umfangsmiklar viðgerðir og endurbætur var hann opnaður aftur árið 2015. Eftir það er hann einn aðal áfangastaður ferðamanna í Andalúsíu. Caminito del Ray var hér áður lýst sem „hættulegasti göngustígur í heimi“ eftir fimm dauðsföll árin 1999 og 2000.

Stígurinn er 7,7 km og tekur uþb 2 klukkustundir að ganga hann. Hann er  með traustum og öruggum handriðum og fær fyrir flesta gesti nema kannski þá sem eru með svima og lofthræðslu eða takmarkaða hreyfigetu.