Antequera
Antequerea
Antequera er kölluð ,,krossgötur Andalúsíu” og er miðja vegu milli Sevilla, Ronda, Málaga og Granada.
Heimsókn í þennan sögufræga andalúsíska bæ er ferðalag næstum 5.000 ár aftur í tímann, saga borgarinnar nær aftur til bronsaldar með innfæddum Íberíubúum.
Í Antequera er fjöldi grafhýsa, rómverskra baða, Márakastala, gotneskra kirkna og klukkuturna frá barokk tímanum.
Þegar horft er á Antequera úr fjarska er borgin dæmigerður miðaldabær, með kirkjuturnum og hlöðnum veggjum frá tímum Mára. Í dalnum fyrir neðan liggja frjósöm ræktarlönd sem Guadalhorce-áin gefur líf. Í aldir hefur þetta svæði verið eitt það frjósamasta í Andalúsíu og er nú leiðandi í ræktun á aspas, korni og ólífum.
Í Antequera eru hin svokölluðu Dolmen sem eru forn grafhýsi, byggð á nýsteinöld og koparöld frá um 3750 til 2200 f.Kr. Þau voru byggð af bændum sem sýndu ótrúverðuga þekkingu á byggingarlist og verkfræði á þeim tíma. Notast var við risastóra steina sem voru grafnir upp í töluverðri fjarlægð. Þetta bendir til vel skipulagðs samfélags með sterka forystu og trúarleg lífsgildi. Áætluð þyngd eins af þaksteinunum í Menga-dolmeninu, er talin vera um 200 tonn. Til samanburðar má geta þess að þyngsti steinninn á hinum fræga Stone Henge-svæði í Bretlandi er 40 tonn.



I am text block. Click edit button to change this text. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper mattis, pulvinar dapibus leo.
I am text block. Click edit button to change this text. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper mattis, pulvinar dapibus leo.
Edda
Edda Jónsdóttir.
Edda Jónsdóttir á að baki nám í Jóga Nidra, Kundalini Jóga og Hatha Jóga. Hún leggur áherslu á jarðtengingu, hlustun og forvitni í allri iðkun. Edda hefur sótt ýmis námskeið sem lýsa áhugasviði hennar s.s. jógaþerapíu, flotþerapíu og Acquatic Massage Therapy. Edda hefur kennt jóga í Jógasetrinu og fleiri stöðum til fjölda ára. Helstu áhugamál eru fjölbreytt hreyfing og útivera ásamt ótalmörgu sem snýr að andlegri og líkamlegri heilsu. Edda bjó um tíma á Spáni og er með BA próf í spænsku auk þess að vera menntaður kennari.

Anna Margrét
Anna Margrét Guðjónsdóttir.
Anna Margrét hefur undanfarin tíu ár unnið með spænsku fyrirtæki og því oft átt erindi til Spánar. Síðustu misserin hefur hún verið með annan fótinn í Málaga borg og þvælst talsvert um Andalúsíu. Áhugann á Spáni og spænskri menningu má rekja allt aftur til unglingsáranna og í menntaskóla byrjaði hún að læra spænsku og reynir eftir bestu getu að bæta við sig í þeim efnum. Í hennar huga er Andalúsía eitt mest spennadi svæði Spánar, hún vill gjarnan deila með okkur áhuga sínum og þekkingu á svæðinu.

Lilja
Lilja Steingrímsdóttir.
Lilja hefur farsællega leitt og skipulagt lengri göngur og hlédrög á Íslandi í yfir tuttugu ár. Hún er vottaður sálmeðferðarfræðingur, hjúkrunarfræðingur, hómópati og leiðsögumaður. Öll hennar menntun og reynsla nýtast vel til að skapa góðar og gagnlegar upplifanir á hlédragi sem þessu. Lilja mun bjóða uppá hópeflandi sál-líkamlegar æfingar og pælingar og spila á hljóðfæri þegar svo ber við.

Dagskrá kvennaferðar til Andalúsíu
6. – 11. maí. – Hlédrag í Húsi drekaflugunnar.
6. maí. Flogið til Málaga, keyrt í rútu til Húss Drekaflugunnar í um klukkutíma.
Eftir kvöldmat hittist hópurinn í jógasalnum, farið verður yfir dagskrána framundan, hópurinn hristir sig saman og slakar svo á í lok dags með jóga nidra.
7. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.
Samvera í Jógasalnum milli kl. 11 og 12.
Þær sem það hafa valið, ganga Caminito del Ray, litla Konungssstiginn. Hópurinn er sóttur kl. 13:45 , gangan byrjar 14:45 og tekur uþb 2. Komið er til baka milli kl. 18 og 18:30.
Kakó seremónía með Helen um kvöldið.
8. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.
Ólívuakur er skoðaður og við fræðumst um ólífuræktun og ólífuolíur.
Samvera og Jóga nidra fyrir svefninn.
9. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.
Gönguferð í El Torcal de Antequera fjallgarðinum, ganga sem er á flestra færi.
Á heimleiðinni komum við við í borginni Antequera og skoðum eitthvað áhugavert þar.
Tónheilun með Rocio í jógasalnum eftir kvöldmat.
10. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.
Frjáls tími eftir morgunmat.
Um eftirmiðdagin er Hópeflandi samvera með sállíkamlegu ívafi
Á þessu síðasta kvöldi í Húsi Drekaflugunnar komum við saman í jógasalnum skemmtum okkur með heimatilbúinni dagskrá, söngi og dansi.
11. – 13. maí Ronda og Málaga
11. maí. Morgunjóga og leidd hugleiðsla á útipallinum.
Kl. 10 eftir morgunmat, er hópurinn sóttur og keyrður til Ronda. Þar skoðum við nokkra merka staði svo sem hina fornu brú yfir gilið.
Við keyrum seinnipartinn á hótelið í miðborg Málaga þar sem við gistum tvær síðustu næturnar.
12. maí. Við bjóðum uppá gönguferð um skemmtilega staði í Málaga í bland við búðaráp.
Málaga er talin vera ein elsta borg Evrópu, hún geymir enn sína gömlu stemningu og margar gamlar hefðir.
Borgin er mátulega stór og auðvelt er að skoða sig um í henni. Þar eru frábærir markaðir og fornar götur til að rölta um.
Um kvöldið hittumst við allar og borðum saman á veitingastað í miðborginni.
13. maí. Heimferðardagur. Flug til Íslands er yfirleitt um eftirmiðdaginn, upplagt er að nota tímann þangað til í að skoða Málaga enn betur og njóta þess að upplifa andrúmsloftið í þessari mögnuðu borg.



EL TORCAL DEL ANTEQUERA
El Torcal
El Torcal er einstakt svæði að skoða með öllum sínum sérstöku steinmyndum. Stórbrotið landslagið lætur engann ósnortinn. El Torcal de Antequera er á heimsminjaskrá UNESCO síðan 2016.
RONDA
Ronda
Að koma til Ronda er mikil upplifun, borgin liggur við klettabrún í yfir 100 metra djúpu gljúfri sem skiptir borginni í tvennt – eldri, márískan hluta „La Ciudad“ og yngri hluta „El Mercadillo“. Risavaxnar súlur hinnar tignarlegu brúar Puente Nuevo tryggja örugga leið yfir gljúfrið og útsýnið þaðan yfir dalinn og svæðið, er óviðjafnanlegt. Ronda er perla meðal sögulegra bæja Andalúsíu og óhjákvæmilegur viðkomustaður þegar farið um þessar slóðir.
MALAGA
Málaga
Málaga er borg sem geislar af arabískri dulúð. Hún býr yfir spennandi menningararfi sem nær aftur til Rómartímans og Alcazaba-virkisins. Í miðbænum eru þröng og sjarmerandi götur og hægt er að heimsækja marga áhugaverða staði fótgangandi, til dæmis Picasso safnið og markaðinn Mercado de Atarazanas. Það er gott að geta látið líða úr sér á borgarströndinni, La Málagueta. Borgin getur verið mikil bragðupplifun, margir veitingastaðir hafa unnið til virtra verðlauna.
Endurnæring í Andalúsíu -Kvennaferð- 6.-13. maí 2026
Endurnæring í Andalúsíu Kvennaferð 6.-13. maí 2026
Við bjóðum þér að upplifa endurnærandi og áhugaverða daga í Andalúsíu. Fimm dagar í Húsi Drekaflugunnar (Dragonfly House), dásamlegum stað sem er hannaður fyrir hlédrög (e. retreat) og tveir daga í miðborg Málaga.
Dagskráin samanstendur af fjölbreyttum upplifunum með alls konar dekri fyrir sál og líkama.
Við verðum með mjúkt jóga, jóga nidra, hugleiðslustundir, nærandi og skapandi samveru, sál-líkamlegar æfingar með samtali og fræðslu, tónheilun og kakó seremóníu.
Við munum ganga um ólífuakur og fræðast um ólífuolíur og ólífuræktun.
Við förum í fremur létta göngu um hinn stórbrotna El Torcal de Antequera fjallgarð.
Við heimsækjum nokkra markverða staði í borginni Antequera.
Við skoðum okkur um í hinni mögnuðu borg Ronda.
Síðustu tvo dagana dveljum við í Málaga, skoðum áhugaverða staði, röltum um fornar götur og rápum í búðir. Á lokakvöldinu skemmtir hópurinn sér saman og borðar á veitingastað í borginni

Hús Drekaflugunnar er staðsett nálægt borginni Antequera, í yndislegri sveitakyrrð með útsýni til allra átta. Öll aðstaða er einstaklega falleg og allt nostursamlega úthugsað. Heilsulindin er innblásin af anda drekaflugunnar, sem táknar umbreytingar, aðlögun og sjálfsþekkingu.

Fjöldi þátttakenda í þessari ferð verður á bilinu átta til fjórtán konur. Að auki erum við þrjár, Lilja, Edda og Anna Margrét (sjá upplýsingar um okkur hér fyrir neðan) sem höldum utan um hópinn og sjáum til þess að þátttakendur fái sem mest út úr þessum dögum.
Það má taka eins mikinn þátt í dagskránni og hver vill, mikilvægt er að hlusta á eigin þarfir. Við erum komnar til að endurnæra okkur og njóta þess að skrúfa niður í hávaða og kröfum, hvaðan sem þær koma.
Hverjar erum við?

Ferðaskrifstofan Heillandi Heimur sér um bókanir og að taka við greiðslum fyrir ferðina.


Samvera og sál-líkamlegar æfingar – samtal – fræðsla. Þessi sál-líkamlega vinna er skapandi og skemmtileg. Við ætlum að skoða ýmsa sálræna færni eins og að kjarna sig, upplifa sjálfsöryggi, skynja raunveruleikann, tengjast öðrum og eiga í samskiptum.

Útijóga. Pallurinn stendur hátt þar sem hægt er að horfa á sólarupprásina. Þar er ekki amalegt að byrja daginn, hugleiða og gera mjúkt jóga. Alltaf bónus að fá auka skammt af D-vítamíni og ferska loftið vekur og hressir.

Maturinn í Húsi Drekaflugunnar er fjölbreyttur og bragðgóður grænmetismatur af bestu gerð. Mikið af grænmetinu er ræktað á staðnum, allt grænmeti er lífrænt og maturinn að mestu leyti fæða úr nágrenninu. Boðið er uppá þrjár máltíðir á dag. Hús Drekaflugunnar býður uppá ólífuolíu úr ólífum sem eru ræktaðar á staðnum.

Sundlaugin er stór og falleg með rúmgóðri sólbaðs og hvíldaraðstöðu og staðsett þar sem útsýni er til allra átta.

Jógasalurinn í Húsi Drekaflugunnar er einstaklega fallegur, bjartur og vel búin af jógadýnum og öðru sem þarf að hafa við hönd til jógaiðkunar, tónheilunar og fleira.

Á heimasíðu Húss Drekaflugunnar, er hægt fá ýmsar upplýsingar, sjá myndir af herbergjum, umhverfinu, allri aðstöðunni og yfirlitskort af svæðinu.

Við förum í skoðunarferðir um nokkra áhugaverða staði í Andalúsíu; El Torcal de Antequera, Ronda, Antequera og Málaga.
Andalúsía er einstakt svæði, ríkt af náttúrufegurð og fornri og flókinni menningarsögu. Húsagerðarlist og menning öll bera sýnileg áhrif frá mismunandi tímabilum þegar réðu ríkjum ýmist Rómverjar, Márar, Fönikíumenn, Vandalar, Gotar, Karþagómenn, Keltar og fleiri. Í Orce í Andalúsíu fundust einar elstu mannvistarleifar Evrópu sem eru 1.4 milljón ára gamlar.
DAGSKRÁIN ÞESSA DAGA:
Ferðaskrifstofan Heillandi Heimur sér um bókanir og greiðslur.
Athugið að það eru aðeins fá pláss í boði í þessa ferð, hámark 14 þátttakendur, um að gera að tryggja sér sæti sem fyrst.
Verð:
- kr. 305.000.- í 2ja manna herb.
- kr. 357.000.- í einbýli.
Innifalið:
- Allar bíl- og rútuferðir innan Spánar
- Öll auglýst dagskrá.
- Allur matur í Dragonfly house.
- Öll gisting.
Ekki innifalið:
- Flug til og frá Íslandi,
- Matur í Málaga
- Akstur á flugvöllinn í Málaga í lok ferðar.
Staðfesta þarf þátttöku með því að greiða kr. 60.000.- eigi síðar en 15. desember. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt nema ef ferðin fellur niður, þ.e. ef lágmarksþátttaka (8 konur) næst ekki.
Eftirstöðvarnar þarf að greiða fyrir 1. febrúar 2026.

Hafðu samband ef þú vilt vita meira.















